Innlent

Réttindalaus talinn hafa valdið umferðarslysi undir áhrifum fíkniefna

Réttindalaus ökumaður fólksbíls, sem grunaður er um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna, er talinn hafa verið valdur af alvarlegu umferðarslysi á gatnamótum Selvogs- og Óseyrarbrautar í Þorlákshöfn í gær.

Maðurinn ók austur Selvogsbraut og inn á Óseyrarbraut í veg fyrir bifhjól og kastaðist ökumaður bifhjólsins yfir 20 metra frá árekstursstaðnum. Hann fót-, handar- og mjaðmagrindarbrotnaði en ökumaður bílsins slapp ómeiddur.

Fram kemur í dagbók lögreglunnar á Selfossi að bifreiðin hafi skemmst mikið og bifhjólið er að öllum líkindum ónýtt. Lögreglan segir ökumann bifreiðarinnar ekki hafa virt umferðarrétt og verður málið tekið til frekari rannsóknar með tilliti til þessar meintu brota og líkamsmeiðingar af gáleysi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×