Erlent

Dick Cheney í óvænta heimsókn til Íraks

Dick Cheney varaforseti Bandaríkjanna kom í óvænta heimsókn til Bagdad í morgun en nú eru fimm ár liðin frá innrásinn í Írak.

Cheney mun hitta að máli æðsta yfirmann bandaríska hersins í Írak, hershöfðingjann David Petraeus og sendiherra Bandaríkjanna í landinu. Cheney mun einnig eiga viðræður við forsætisráðherra Íraks og aðra háttsetta embættismenn. Heimsókn Cheney er upphafið að níu daga för hans um Miðausturlönd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×