Erlent

Kínversk stjórnvöld neita að hafa drepið mótmælendur

Kínversk stjórnvöld hafa neitað því að hafa drepið saklausa mótmælendur í uppþotunum sem verið hafa í Lhasa höfuðborg Tíbets að undanförnu.

Stjórnvöld segja að 13 af mótmælendunum hafi farist í síðustu viku í uppþotum og ólátum í tengslum við mikil mótmæli í borginni. Leiðtogar Tíbets í útlegð segja töluna vera nærri áttatíu manns.

Dalai Lama andlegur leiðtogi Tíbet hefur krafist þess að alþjóðleg rannsókn fari fram á aðgerðum kínverska stjórnvalda gegn mótmælendunum í Lhasa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×