Erlent

Dick Cheney í óvæntri heimsókn til Íraks

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna.
Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna.

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, birtist í óvæntri heimsókn til Íraks í morgun og átti þar fund með David Petraeus hershöfðingja og Ryan Crocker, sendiherra Bandaríkjanna í Írak. Á fundadagskrá varaforsetans er einnig að finna fundi með forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki, og Jalal Talabani forseta. Ferðalag Cheneys um Mið-Austurlönd hófst í gær en meðal áfangastaða hans eru Óman, Sádi-Arabía, Tyrkland, Ísrael og Vesturbakkinn.

Hátt eldsneytisverð er meðal þeirra umræðuefna sem varaforsetinn hyggst ræða við gestgjafa sína á ferðalaginu, einnig mun hann kynna sér stöðuna í deilu Ísraela og Palestínumanna en Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, var í heimsókn á þeim vettvangi fyrir skömmu með það fyrir augum að þoka friðarviðræðum áleiðis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×