Erlent

Fjórir blaðamenn frá BBC handteknir á Írlandi

Fjórir blaðamenn frá BBC voru handteknir á Írlandi um helgina eftir að hafa tekið upp yfirlýsingu frá grímuklæddum IRA-manni sem gera átti opinbera um páskana.

Handtökurnar áttu sér stað í Donegal sýslu við landamærin að Norður-Írlandi en sýslan var lengi griðarstaður fyrir IRA samtökin. BBC á Norður-Írlandi verst allra frétta af málinu en að sögn írsku lögreglunnar voru fjórir aðrir menn handteknir um leið og blaðamennirnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×