Enski boltinn

Saha vill ekki fara frá United

Elvar Geir Magnússon skrifar
Saha er 29 ára.
Saha er 29 ára.

Louis Saha, sóknarmaður Manchester United , segist vilja vera áfram hjá félaginu og er ákveðinn í að sanna sig eftir að hafa gengið í gegnum erfið meiðsli.

Saha hefur verið orðaður við Bolton og Roma en segist ekki vera að hugsa um að fara frá Old Trafford.

Saha lék aðeins fimm leiki í byrjunarliðinu í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en hann hefur verið meira og minna meiddur síðan hann kom frá Fulham 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×