Nánir vinir Vilhjálms gætu grætt milljarða á lóðabraski 23. febrúar 2008 09:42 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Ætlar að gerast aftur borgarstjóri eftir 13 mánuði.
Magnús Jónatansson, einn nánasti vinur og stuðningsmaður borgarstjórans fyrrverandi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, og félagar hans í eignarhaldsfélaginu Lindberg gætu grætt milljarða á lóðabraski í Örfirisey. Til þess að þarf þó fyrst að breyta deiliskipulagi hafnarsvæðisins í íbúðabyggð. Lindberg, sem er í eigu hæstaréttarlögmannsins Ólafs Garðarssonar, áðurnefnds Magnúsar og Ómars Benediktssonar, stjórnarformanns RÚV ohf auk Byr og Icebank, hóf uppkaup á eignum á Fiskislóð um mitt ár 2006. Skömmu áður hafði meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks undir forystu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, tekið við völdum í borginni. Síðan þá hefur Lindberg keypt á þriðja tug eigna í Örfirisey, flestar í Fiskislóð en einnig tryggt sér forkaupsrétt að tíu eignum á Hólmaslóð og Eyjarslóð. Heimildir Vísis herma að Lindberg hafi greitt á þriðja milljarð fyrir eignirnar en Faxaflóahafnir féllu í öllum tilfellum frá forkaupsrétti sínum. Um ræða mjög stórt svæði sem hleypur á tugum þúsunda fermetra og má ljóst vera að svæðið verður gífurlega verðmæt þegar og ef nýtt deiliskipulag verður samþykkt með íbúðabyggð. Þá munu Magnús, sem hefur lýst yfir stuðningi sínum við Vilhjálm Þ. opinberlega, og félagar hans í Lindberg væntanlega græða milljarða. Þetta eru þó ekki einu tengsl Vilhjálms Þ. við lóðirnar í Örfirisey. Svanur Vilhjálmssson, bróðir borgarstjórans fyrrverandi, græddi samkvæmt heimildum Vísis um 50 milljónir eftir að hafa fengið úthlutað lóð á Fiskislóð 37 í nafni eignarhaldsfélagsins Kvikk í byrjun árs 2007. Félagið virðist hafa verið stofnað í þeim eina tilgangi að fá þessa lóð. Nokkrum mánuðum seinna seldi Svanur eignarhaldsfélagið, hvers eina eign var lóðin á Fiskislóð, til Þormóðs Jónssonar sem er nánasti viðskiptafélagi Hannesar Smárasonar, fyrrverandi forstjóra FL Group. Lóðin, sem átti að vera klár síðastliðið haust, hefur enn ekki verið skráð í Fasteignamat ríkisins.
Mest lesið Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Tónlistarmaðurinn Róbert Örn er fallinn frá Innlent Losuðu stúlku úr „prísund“ við Háskólabíó Innlent Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Vill losna við lífverði Bjarna úr þinghúsinu Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira