Enski boltinn

Þýðir ekkert að veifa peningum framan í mig

NordicPhotos/GettyImages

Stuart Pearce er einn þeirra sem orðaður hefur verið við stjórastöðuna hjá West Ham United. Hann segist hinsvegar ætla að standa við gerða samninga við enska knattspyrnusambandið og halda áfram með U-21 árs lið Englands.

Pearce er jafnan vanur að standa við gefin loforð og er maður sem lætur verkin tala. Engin breyting virðist vera á því ef marka má svörin sem hann gaf breska blaðinu Sun þegar hann var spurður út í lausa stöðu hjá West Ham.

"Ég er maður orða minna og ég verð að segja að ég er vonsvikinn með þróun mála í knattspyrnunni í dag. Ég lofaði því að ég myndi standa við mína samninga þegar ég skrifaði undir samning minn við enska knattspyrnusambandið og ég mun standa við hann. Það er aldrei að vita hvað gerist ef við föllum úr keppni, en ég mun standa við mína samninga þó einhver veifi peningum fyrir framan nefið á mér," sagði Pearce.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×