Enski boltinn

Umboðsmaður Rooney dæmdur í bann

NordcPhotos/GettyImages

Umboðsmaður knattspyrnumannsins Wayne Rooney var í dag dæmdur í 18 mánaða bann og gert að greiða 300,000 punda sekt fyrir ólöglegt athæfi. Það var enska knattspyrnusambandið sem kærði umboðsmanninn, en hann ætlar að áfrýja niðurstöðunni.

Paul Stretford þykir hafa beitt vafasömum aðferðum til að tryggja sér að fá að starfa með Rooney á sínum tíma og fyrir að bera ljúgvitni við lögreglu og fyrir rétti.

Bann Stretford tekur ekki gildi fyrr en eftir að áfrýjun málsins verður tekin fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×