Innlent

Mikil fjölgun lifrarbólgusmita í fyrra

MYND/Reuters

Óvenju margir greindust með lifrarbólgu B í fyrra eða 48 manns samkvæmt nýjum tölum sem greint er frá í Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. Þá greindust 95 með lifrarbólgu C sem er umtalsverð aukning frá fyrri árum.

Um helmingur þeirra sem smituðust af lifrarbólgu B voru innflytjendur og vitað var um átta sem höfðu sprautað sig með fíkniefnum. Bent er á í Farsóttarfréttunum að síðast hafi gengið yfir faraldur meðal fíkniefnaneytenda á árunum 1989-199.

Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að bjóða fíkniefnaneytendum, sem ekki hafa smitast af lifrarbólgu B, bólusetningu gegn sjúkdómnum til að koma í veg fyrir nýjan faraldur í þessum hópi. Hlutur innflytjenda meðal þeirra sem greinast með lifrarbólgu B er enn nokkuð hár.

Þá kemur fram í fréttabréfinu að lifrarbólga C sé langalgengasta lifrarbólgan hér á landi. Meginþorri þeirra sem smitast séu fíkniefnaneytendur sem sprauta sig. Á árinu 2007 greindust 95 manns með lifrarbólgu C, sem er umtalsverð aukning miðað við árin á undan. Þessi aukning er vísbending um hugsanlega aukningu á misnotkun fíkniefna með sprautum og nálum og ógætilega notkun þeirra þar sem skipst er á menguðum áhöldum, segir sóttvarnalæknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×