Nokkuð frá markmiðum WHO um bólusetningu aldraðra 19. maí 2008 17:08
Íslendingar eiga nokkuð í land með að ná því markmiði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar að á árinu 2010 fái að minnsta kosti þrír af hverjum fjórum þeirra sem eru eldri en 65 ára árlega bólusetningu gegn inflúensu. Þetta kemur fram í Farsóttarfréttum Landlæknisembættisins. Þar er bent á að sala á inflúensubóluefnum á Íslandi hafi verið með því hæsta sem þekkist en þar sem skráning á bólusetningum hér á landi hafi til þessa ekki verið miðlæg sé ekki vitað hver notkunin hafi verið verið hjá einstaklingum í áhættuhópum, þar á meðal einstaklingum eldri en 60 ára. Öllum einstaklingum eldri en 60 var boðið upp á inflúensubóluefni ókeypis í vetur og var vonast til að auka mætti þekjun inflúensubólusetningar hjá einstaklingum 60 ára og eldri og hjá skilgreindum áhættuhópum. Alls voru rúmlega 17.100 einstaklingar í áhættuhópum bólusettir síðastliðið haust og þar af voru 15.854 einstaklingar 60 ára og eldri. Mest var þekjunin hjá einstaklingum 70 ára og eldri en einungis 32 prósent af öllum 60 ára og eldri voru bólusettir og því nokkuð í land að markmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar verði náð. „Þó er hugsanlegt að sóttvarnalækni hafi ekki borist tilkynningar um allar bólusetningar þessa aldurshóps og hlutfallið sé því í raun hærra," segir í Farsóttarfréttum. Sóttvarnalæknir segir fulla ástæðu til að vekja athygli á því að bólusetning geti verið gagnleg, jafnvel þótt inflúensa hafi greinst í samfélaginu. Því sé óráðlegt að takmarka inflúensubólusetningu við stuttan tíma á haustin og áréttað að einstaklingar eigi rétt á bólusetningu enda þótt inflúensufaraldur sé hafinn.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Sjá meira