Enski boltinn

Barry vill fara til Liverpool

NordcPhotos/GettyImages

Umboðsmaður miðjumannsins Gareth Barry hjá Aston Villa hefur nú staðfest að Barry hafi farið þess á leit við forráðamenn Villa að fá að fara til Liverpool í sumar.

Barry hefur lengi verið orðaður við Liverpool en Aston Villa hefur til þessa neitað öllum kauptilboðum í hann. Nú gæti hinsvegar komið annað hljóð í forráðamenn Villa þar sem leikmaðurinn á að hafa tjáð þeim að hann vilji fara frá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×