Steed Lord í kvikmyndahúsi Stalíns 16. nóvember 2008 04:00 Systkinin Krummi og Svala Björgvins skemmtu rússneskum ólígörkum á skemmtistaðnum Gradus í Moskvu í gærkvöldi.
Hljómsveit Svölu Björgvins og Einars Egilssonar, Steed Lord, kom fram á skemmtistaðnum Gradus í Moskvu í gærkvöldi. Staðurinn var áður einkakvikmyndahús Jósefs Stalín, einræðisherra Sovétríkjanna, en er nú einn vinsælasti skemmtistaður höfuðborgarinnar meðal hinna nýríku ólígarka. Ásamt Steed Lord steig Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, á stokk með sveitinni og tók með henni tvö eða þrjú lög. Hljómsveitin var á ferðalagi þegar Fréttablaðið reyndi að ná sambandi við meðlimi hennar. En blaðið náði tali af Björgvini Halldórssyni, föður þeirra Svölu og Krumma, sem segir að það sé svolítið skondið að börnin hans skuli vera á þessum slóðum, aldarfjórðungi eftir að hann fór í fimm vikna tónleikaferðalag um allt Rússland. „Og þá var Brésnjev aðalritari kommúnistaflokksins og Sovétríkin voru alvöru," segir Björgvin. Hann viðurkennir að vissulega hafi hann velt því fyrir sér að skella sér með til Moskvu og búa til hálfgerða fjölskylduferð. Hann sé hins vegar á fullu við að undirbúa jólatónleikana sína sem verði haldnir í Laugardalshöll 6. desember. Björgvin tekur jafnframt fram að plata Steed Lord, Truth Serum eða Sannleikslyfið, muni koma út seinna í þessum mánuði og segir það ekki rétt að útgáfufyrirtækið Sena hafi bakkað út úr framleiðslu hennar því það sé fyrirtækið hans sem gefi plötuna út. Sena komi hins vegar að dreifingunni eins og hjá svo mörgum öðrum listamönnum. „Ég er svo líka að gefa út Esju," bætir Björgvin við en hana skipa einmitt Krummi og Daníel Ágúst.
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira