Fjármunir færðir til til að leysa stuðningsfjölskylduvanda 5. mars 2008 14:12 MYND/GVA
Búið er leysa vanda Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Reykjanesi sem snýr að stuðningsfjölskyldum fatlaðra barna en halli skrifstofunnar frá síðasta ári er enn óleystur. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra við upphaf þingfundar í dag. Ráðherra kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar í dag til þess að leiðrétta orð Árna Þór Sigurðssonar, þingmanns Vinstri - grænna, á Alþingi í gær. Þar hefði Árni sagt að ráðherra hefði ekki sagt rétt frá í óundirbúnum fyrirspurnum á mánudag um að engri fjölskyldu fatlaðs barns á Suðurnesjum hefði verið neitað um samning um stuðningsfjölskyldu. Vísaði Árni þar til fréttar í Ríkisútvarpinu í hádeginu í gær. Sagði Jóhanna að það væri miður að Árni hefði ekki látið sig vita að hann hygðist taka upp málið í gær. Vísaði Jóhanna enn fremur til þess að svæðisskrifstofan hefði í gær sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram hefði komið að engum hefði verið neitað um samning. Þar hefði einnig komið fram að Jóhanna hefði ekki farið með rangt mál. Árni Þór Sigurðsson baðst afsökunar á því hafa ekki látið ráðherra vita að hann hygðist taka upp málið á þingi í gær en hann hefði átt von á ráðherra á þingfundi. Sagði hann að svo virtist sem ráðherra hefði hrokkið upp af standi vegna umfjöllunar Ríkisútvarpsins og á þingi og tekið málið fyrir. Hann hefði í gær hlustað á viðtal við föður fatlaðs barns í Ríkisútvarpinu og því tekið málið upp. Þá sagði Árni að hann hefði ekki sagt afdráttarlaust að ráðherra hefði farið með rangt mál heldur sagt að svor virtist vera. Spurði Árni enn fremur hvort búið væri að leysa málefni svæðisskrifstofunnar. Jóhanna sagði rekstrarvanda svæðisskrifstofunnar hafa verið til skoðunar í nokkurn tíma og viðræður hafi verið í gangi þegar fréttaflutningur af málinu hafi hafist. Málefni stuðningsfjölskyldna hafi verið leyst með tilfærslu fjármuna innan stofnunarinnar en 30 milljóna króna halli hennar frá síðasta ári væri ennóleystur.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Fleiri fréttir „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Sjá meira