Enski boltinn

City að ganga frá kaupum á Jo

Elvar Geir Magnússon skrifar
Jo á fullri ferð.
Jo á fullri ferð.

Manchester City hefur náð samkomulagi við CSKA Moskvu um 19 milljón punda kaupverð á brasilíska sóknarmanninum Jo. Mark Hughes hefur lengi á eftir leikmanninum.

Jo er 21. árs og lék sinn fyrsta landsleik fyrir Brasilíu á síðasta ári. Hann á 30 mörk að baki með CSKA Moskvu í 53 leikjum.

Mark Hughes stefnir í að stýra Manchester City í eitt af sex efstu sætunum á næsta tímabili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×