Innlent

Fjórir handteknir grunaðir um alvarlega líkamsárás

Lögreglan hefur handtekið fjóra menn, grunaða um aðild að alvarlegri líkamsárás í Breiðholti nú síðdegis. Lögreglan verst allra frétta að svo stöddu, en samkvæmt upplýsingum frá sjúkraliði voru tveir fluttir á slysadeild.

Sjónarvottur sagði í samtali við Vísi að lögreglumenn hefðu stöðvað menn í bíl á Reykjanesbrautinni, skammt frá Vogaafleggjara, og fært þá í járn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×