Dagur segir augljósar missagnir í máli formanns KSÍ 26. mars 2008 12:58 Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi.
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að efni bréfs sem Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sendi borgarstjóra varðandi störf nefndar um byggingaframkvæmdir á Laugadalsvelli komi sér á óvart. Framkvæmdir hafa farið um sex hundruð milljónum fram úr áætlun en Geir segir að Degi hafi átt að vera fullkunnugt um þessa framúrkeyrslu. Þessu neitar Dagur. „Í þessum texta eru fulllyrðingar sem stangast á við fyrirliggjandi gögn og fundargerðir auk yfirlýsinga Geirs sjálfs frá því fyrir páska. Ég átta mig þess vegna ekki á því hvernig þetta varð til," segir Dagur. Hann segir að í bréfi Geirs sé missagt hvað fór fram á fundum byggingarnefnda. Þá segir Dagur það liggja fyrir að KSÍ hafi tekið einhliða ákvörðun um að semja við Ístak um framkvæmdir án nokkurs samráðs. Einnig hafi KSÍ gert beytingar á útboðsgögnum án aðkomu byggingarnefndar eða borgarinnar. Þá leggur Dagur áherslu á að stærstur hluti framúrkeyrslunnar sé vegna viðbótar- og aukaverka sem KSÍ samþykkti löngu eftir kosningar. Hann hafi þá verið hættur í byggingarnefndinni. „Það þarfnast því alveg sérstakra skýringa hvers vegna formaður KSÍ kýs að gera minn hluta í þessu tortryggilegan. Vegna þess að í minni tíð var þó eitthvað eftirlit af hálfu bygginganefndar. Eftir stendur þó að engin viðbótar- og aukaverk sem KSÍ samþykkti voru borin undir byggingarnefnd.“ Loks segir Dagur það vera miður að greinargerð KSÍ sé komin í fjölmiðlaumræðu áður en forsvarsmenn þess fái tækifæri til að leiðrétta þær augljósu missagnir sem í henni séu.
Tengdar fréttir Formaður KSÍ segir Degi hafa verið fullkunnugt um framúrkeyrslu Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segist ekki geta setið undir þeim fullyrðingum Dags B Eggertssonar, sem átti sæti í nefnd um framkvæmdir við Laugadalsvöll, að honum hafi verið ókunnugt um það, þar til fyrir skömmu, 26. mars 2008 11:36 Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Sjá meira
Formaður KSÍ segir Degi hafa verið fullkunnugt um framúrkeyrslu Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segist ekki geta setið undir þeim fullyrðingum Dags B Eggertssonar, sem átti sæti í nefnd um framkvæmdir við Laugadalsvöll, að honum hafi verið ókunnugt um það, þar til fyrir skömmu, 26. mars 2008 11:36