Óheppilegt að sömu aðilar tengist Þróunarfélagi og kaupendum eigna 26. mars 2008 15:08 Sigurður Þórðarson er ríkisendurskoðandi.
Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar var fyllilega heimilt að selja eignir ríkisins á fyrrum varnarliðssvæði á Keflavíkurflugvelli án aðkomu Ríkiskaupa og bar ekki skylda til að bjóða þær út. Hins vegar segir stofnunin að gæta hefði mátt betur að hæfisskilyrðum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra Þróunarfélagsins við söluna en ekki verði sé að slíkir þætti hafi haft áhrif á hana eða valdi því að sölusamningar séu ógildir. Þetta segir Ríkisendurskoðun í stjórnsýsluúttekt sinni á málinu en ráðist var í hana í kjölfar harðrar gagnrýni á Alþingi á sölu eignanna. Ríkisendurskoðun kemst enn fremur að því að hagsmuna ríkisins hafi verið gætt við ráðstöfun eignanna. Í stjórnsýsluúttektinni á Þróunarfélaginu bendir Ríkisendurskoðun á að félaginu sé í lögum falin umsýsla fasteigna á fyrrum varnarliðssvæði á Keflavíkurflugvelli og framtíðarþróun svæðisins fyrir hönd íslenska ríkisins. Það hafði því fullar heimildir til að selja þessar fasteignir án aðkomu Ríkiskaupa og þurfti ekki að bjóða þær út í samræmi við lög um opinber innkaup. Ríkisendurskoðun telur hins vegar að Þróunarfélaginu hafi borið að efna til útboðs um nauðsynlegar breytingar á rafmagni fasteigna vegna umfangs þess verkefnis og útfærslu á endurgjaldi fyrir það. „Ríkisendurskoðun telur að seldar fasteignir á varnarliðssvæðinu fyrrverandi hafi verið auglýstar með fullnægjandi hætti þótt hugsanlega hefði mátt gera enn betur í þeim efnum. Þá hafi hagsmuna ríkisins verið gætt við ráðstöfun þeirra. Hæstu tilboðum hafi nær undantekningarlaust verið tekið nema þegar sala annarra fasteigna hefði þar með ekki gengið eftir og heildarverð seldra eigna því lækkað," segir í tilkynningu Ríkisendurskoðunar. Ríkisendurskoðun brýnir fyrir stjórnendum Þróunarfélagsins að gæta vel að hæfisskilyrðum við meðferð mála, þar á meðal við undirbúning og ákvörðun um sölu eigna. Stofnunin telur óheppilegt að sömu aðilar tengist bæði Þróunarfélaginu og félögum sem keypt hafa eignir af því. Slíkt geti alið á tortryggni og dregið úr trúverðugleika og réttaröryggi. Þá sé eðlilegt að stjórn félagsins takmarki óvenju víðtækt umboð framkvæmdastjóra félagsins til að skuldbinda það og tryggi þar með að stjórnin komi að öllum meiriháttar ákvörðunum. Ekki verður þó ætlað að hæfi einstakra aðila hafi haft áhrif á sölu eigna á svæðinu eða valdi því að einstakir sölusamningar séu ógildir. Skýrsluna í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent Kalt í veðri miðað við árstíma Veður Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Innlent „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni Erlent Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Innlent Fleiri fréttir „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra Sjá meira