Lífið

Jessica Alba hamast til að losna við óléttuþyngdina

Jessica Alba er kannski komin sex mánuði á leið, en hún ætlar sér alls ekki að líta út fyrir það. Samkvæmt heimildum Life and Style tímaritsins er leikkonan dauðhrædd við að þyngjast á meðgöngunni og æfir því sem aldrei fyrr.

Kunningar Jessicu segja að það sé engu líkara en hún sé að æfa fyrir maraþon. Ófrískum konum sé ráðlagt að ofreyna sig ekki, en hún láti þær ráðleggingar sem vind um eyru þjóta.

Ástæðan fyrir hræðslunni er skiljanleg, en mikill þrýstingur er á Hollywoodstjörnur að líta vel út. Þá mun Jessicu mikið í mun að koma vel út í samanburði við aðrar óléttar stjörnur, en svo virðist sem önnur hver kona í kvikmyndaborginni sé með barni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.