Lögbrotum fækkar milli ára 20. febrúar 2008 11:02 MYND/Róbert
Lögbrotum sem skráð eru hjá Ríkislögreglustjóra fækkaði nokkuð í janúar miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra. Umferðarlagabrot voru til að mynda rúmlega 3100 í nýliðnum janúar en þau voru rúmlega 3300 í fyrra. Þá voru skráð 140 fíkniefnabrot í ár en þau voru yfir 160 í janúar 2006 og 2007. Tölur Ríkislögreglustjóra sýna einnig að tilkynningum um líkamsmeiðingar fækkar úr 104 í janúar í fyrra í 85 í ár og þá voru helmingi færri nytjastuldsbrot skráð í fyrsta mánuði þessa árs en á sama tíma í fyrra, eða 30 í stað 59. Hratt ekið um Hvalfjarðarsveit Lögreglan hefur á síðustu árum tekið upp staðbundnar hraðamyndavélar, meðal annars færanlega vél á höfuðborgarsvæðinu og vél í Hvalfjarðargöngum sem telur með brotum á höfuðborgarsvæðinu. Þá voru í júlí í fyrra teknar í notkun tvær stafrænar hraðamyndavélar í Hvalfjarðarsveit, sem er í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi, og um miðjan janúarmánuð síðastliðinn voru teknar upp sams konar vélar í Fáskrúðsfjarðargöngum sem er í umdæmi lögreglunnar á Eskifirði. Athygli vekur að rúmlega 373 hraðakstursbrot voru skráð með staðbundnum hraðamyndavélum á höfuðborgarsvæðinu í janúar síðastliðnum en þau voru 780 í Hvalfjarðarsveit og 79 í Fáskrúðsfjarðargöngum.
Mest lesið Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Valgarð Már er látinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira