Lífið

Sjónvarp í símann hjá Nova

MYND/Sigurjón Ragnar
Viðskiptavinir Nova munu innan skamms geta horft á sjónvarp í símanum sínum, en fyrirtækið hefur gert samning við Industria um hugbúnaðarlausn sem tryggir öllum viðskiptavinum Nova sjónvarpsútsendingar og margmiðlunarefni í farsímann með því að ýta á einn takka.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að samstarf Nova og Industria tryggir að viðskiptavinir Nova hafa stöðugt aðgang að nýju margmiðlunarefni í farsíma. Viðskiptavinir Nova geta nú þegar fylgst með fréttum og vefútsendingum íslenskra og erlendra sjónvarpsstöðva, skoðað bíóbrot frá kvikmyndahúsunum, fylgst með tónlistarstöðvum og fleira. Efnisveitur sem eru í boði eru t.d. MTV, Skífan-TV, Skjar1, CNN, MBL-TV, RÚV og Stöð2.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.