Háskólinn í samstarf við Auðlindastofnun Indlands 20. febrúar 2008 13:42 Frá undirskrifinni. Kristjín Ingólfsdóttir, R.K. Pachauri og Ólafur Ragnar Grímsson.
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirritaði á dögunum samstarfssamning við indverska háskólann TERI (Auðlindastofnun Indlands), um víðtæka samvinnu í umhverfis- og auðlindafræðum, í orku- og jarðvísindum auk samvinnu í rannsóknum á sjálfbærri þróun. Samningurinn, sem var undirritaður í Nýju Delhi á Indlandi, felur einnig í sér gagnkvæm skipti á nemendum og kennurum. Í tilkynningu frá Háskóla Íslands kemur fram að Nóbelsverðlaunahafinn R.K. Pachauri hafi skrifað undir samstarfssamninginn fyrir hönd TERI en hann tók við friðarverðlaunum Nóbels á síðasta ári ásamt Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. Pachauri er forstöðumaður TERI en hann hefur einnig starfað sem formaður vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) og tók við Nóbelsverðlaununum sem fulltrúi þeirra. „Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var við undirritunina á samningi háskólanna en viðstödd athöfnina voru einnig þær Guðrún Pétursdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun, Árný Erla Sveinbjörnsdóttir stjórnarformaður stofnunarinnar, Jón Atli Benediktsson prófessor í rafmagnsverkfræði og þróunarstjóri Háskóla Íslands og Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands á Indlandi," segir einnig í tilkynningunni. Þá segir að tilgangur heimsóknar Kristínar Ingólfsdóttur til Indlands hafi verið að þiggja boð Pachauri um að flytja fyrirlestur á alþjóðlegri ráðstefnu um loftslagsbreytingar auk þess að taka þátt í umræðum við lok ráðstefnunnar og skrifa undir áðurnefndan samning. „Í heimsókn Kristínar og fylgdarliðs til Indlands kynnti starfsfólk TERI starfsemi stofnunarinnar og áherslur í rannsóknum og kennslu. Sendinefnd Háskóla Íslands kynnti starfið hér heima og valin verkefni á sviði jöklafræði, orkuvísinda, jarðskjálftafræði auk umhverfis- og auðlindafræða. Jafnframt var skýrt frá aðkomu vísindamanna Háskóla Íslands að kennslu í Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna, sem starfræktur hefur verið á Íslandi í 30 ár," segir að lokum.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Sjá meira