Dauðasveitir Hillary Clinton í Kastljósinu 6. mars 2008 11:31 Þórhallur og Jóhanna í Kastljósinu.
Áhorfendur Kastljóssins í gærkvöldi ráku margir hverjir upp stór augu þegar sýna átti auglýsingu frá stuðningsmönnum Hillary Clinton í umræðu um forkosningar demókrata í Bandaríkjunum. Fyrir mistök var sýnd afbökuð útgáfa af auglýsingunni þar sem sagt er að Hillary muni senda dauðasveitir heim til þeirra kjósenda sem ekki greiði henni atkvæði til þess að myrða börnin þeirra. Hin eiginlega auglýsing er öllu meinlausari en hún gengur út á að Hillary sé treystandi til að vaka yfir öryggi þjóðarinnar öllum stundum. „Hrapaleg mistök," segir Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóssinns. Jóhanna Vilhjálmsdóttir fékk til sín þau Karl Th. Birgisson og Silju Báru Ómarsdóttur til þess að ræða forkosningarnar í Bandaríkjunum. Þar var minnst á áhrifaríka auglýsingu sem er sögð hafa reynst Hillary vel í baráttunni við Barack Obama í Texas og Ohio en þar fór hún með sigur af hólmi. Jóhanna gerði hlé á umræðunum til þess að sýna téða auglýsingu en fyrir mistök fór afbökuð útgáfa hennar í loftið. Að sýningu lokinni kom upp heldur vandræðaleg stemning í þættinum eins og sjá má hér að neðan. „Við Jóhanna horfðum á hina réttu ayglýsingu fyrir þáttinn og óskuðum eftir yfirfærslu á henni en fyrir mistök var vitlaus auglýsing tekin og sett í loftið," segir Þórhallur Gunnarsson og bætir því við að Kastljósfólki hafi ekki verið skemmt. „Þetta voru hrapaleg mistök og það var mjög óheppilegt og leiðinlegt að þetta skyldi gerast," segir ritstjórinn. „Við munum gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að svona nokkuð geti gerst aftur." Hér má sjá Kastljósþáttinn. Og hér má sjá auglýsinguna eins og hún átti að vera.
Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira