Engin vörubretti þrátt fyrir fjárstyrk 16. mars 2008 17:00
Enn hafa engin vörubretti verið framleidd í Mývatnssveit. Hratt gengur á opinbert fé sem fékkst til framleiðslunnar og lýsa heimamenn vonbrigðum. Tvö hundruð milljónir króna fengust frá ríkinu í gegnum Nýsköpunarsjóð þegar veðjað var á að framleiðsla vistvænna vörubretta gæti komið að einhverju leyti í stað starfa sem hurfu þegar Kísiliðjan hætti störfum fyrir fjórum árum. Valgerður Sverrisdóttir fyrrverandi iðnaðarráðherra úthlutaði peningum og stóðu vonir til að framleiðsla á umhverfisvænum vörubrettum myndi veita tugum starfsfólks atvinnu. Viðskiptaáætlun gerði ráð fyrir að mikið magn af pappír, dagblöðum og fleiru yrði flutt frá höfuðborgarsvæðinu norður í land og gufuafl notað til að framleiða vörubretti úr pappírnum. En enn bólar ekkert á brettunum og aðeins 3 starfsmenn eru að störfum við vöruþróun og annað sem til felllur. Starfsmaður vörubrettaverksmiðjunnar sem rekin er undir merkjum Grænna lausna sagði í samtali við fréttastofu í dag að ekkert væri að frétta en leynd hefur ríkt yfir tilraunaframleiðslu fyrirtækisins. Böðvar Pétursson varaoddviti Mývetninga segir að miðað við áætlanir hafi umfang atvinnustarfseminnar á kísiliðjulóðinni aðeins verið í mýflugumynd til þessa. Mývetningar séu vonsviknir og væntingar hafi ekki gengið eftir. Menn lifi þó í voninni. Heimildir fréttastofu herma að til skoðunar sé nú að framleiddar verði vélar í verksmiðjunni sem búi til bretti og vélarnar verði seldar út.
Mest lesið „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Fleiri fréttir Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Sjá meira