Með of skakkar tennur fyrir Ólympíuleikana 12. ágúst 2008 12:37 Peiyi, til hægri, þótti ekki nógu sæt fyrir opnunarhátíðina.
Litla stúlkan sem söng sig inn í hug og hjörtu heimsbyggðarinnar á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Peking söng alls ekki neitt, heldur hreyfði bara varirnar. Stúlkan vakti mikla athygli fyrir „söng" sinn, og mætti í kjölfarið í viðtöl hjá öllum helstu fjölmiðlum landsins. Tónlistarstjóri leikanna sá sig hinsvegar knúinn til að leiðrétta platið. Í viðtali hjá útvarpsstöð í Peking sagði hann að sú sem söng sé Yang Peiyi, sjö ára stúlka sem vann erfiða samkeppni um að fá að syngja lagið, sem heitir „Óður til föðurlandsins", á leikunum. Skömmu fyrir hátíðina tilkynnti meðlimur í kínverska kommúnistaflokknum, sem hafði fylgst með æfingu, að sigurvegarinn væri kannski með fullkomna rödd, en hentaði ekki í hlutverkið þar sem hún væri með svo skakkar tennur. Á opnunarhátíðinni sjálfri var þessvegna íðilfögur níu ára grunnskólamær frá Peking, Lin Miaoke, fengin til að hreyfa varirnar við upptöku á rödd Peiyi. Tónlistarstjórinn, herra Chen, varði ákvörðunina í viðtalinu þar sem hann sagði það sem mestu máli skipti vera hagsmuni þjóðarinnar. Barnið á skjánum þyrfti að vera óaðfinnanlegt, útlit jafnt sem innri maður. Yang Peiyi hefði verið fullkomin, allt þar til athyglin beindist að tönnum hennar. Þetta var ekki það eina sem var fegrað fyrir opnunarhátíðina. Í gær kom í ljós að hluti flugeldasýningarinnar sem birtist sjónvarpsáhorfendum hefði verið tölvuteiknaður.
Mest lesið Kærastinn skyndilega orðinn „pabbi“ Aldísar Lífið Fór ein í eftirpartý með Drake en segir ekki meir Lífið Bullandi boltastemning á árshátíð Sýnar Lífið Kynorkan alltumlykjandi hjá óléttu óperusöngkonunni Menning „Þú ert svo falleg“ Lífið Fjölgar mannkyninu enn frekar Lífið Laufey treður upp með Justin Bieber Tónlist „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Lífið Eiríkur og Alma selja smekklega hæð í Garðabæ Lífið „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Fleiri fréttir „Þú ert svo falleg“ Djúsí Ceasar vefja sem klikkar seint Bullandi boltastemning á árshátíð Sýnar Fjölgar mannkyninu enn frekar Berjamó með sjálfum Berjakarlinum Eiríkur og Alma selja smekklega hæð í Garðabæ Fór ein í eftirpartý með Drake en segir ekki meir „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Kærastinn skyndilega orðinn „pabbi“ Aldísar Borguðu norn fyrir gott veður á brúðkaupsdaginn Fjallar ekki um eiturlyf í dýrðarljóma „Án djóks besta kvöld lífs míns“ Robert Redford er látinn Norska konungsfjölskyldan krefst breytinga á heimildarmynd Netflix Fyrst „stóru fimm“ til að hóta sniðgöngu Keyptu vistvænt hús í Garðabæ af meðlimi Sigur Rósar Fögur hæð í frönskum stíl „Hann varð fyrir gríðarlega miklum árásum úr samfélaginu“ Mægðurnar Vanda Sig og Dísa sögðu fokk við ofbeldi Salka Sól og Elísabet Jökuls mættu á frumsýningu „Komst ekki á Emmy-hátíðina en komst á bráðamóttökuna“ Staða inn á fótboltavelli sem heitir það sama og bleyjutegund Glæpasagnahöfundur nældi sér í fyrirsætu Stökkva út í sjó úr margra metra hæð og fréttamaður fékk að prófa „Áttum góða tíma og mjög ástríkt samband að mestu“ Ein sú fegursta komin á fast Drake fékk brjóstahaldarann frá Guggu í fangið Stjörnulífið: Gellurnar stóðu vaktina Lifði með fjögurra prósenta sjón án greiningar Adolescence, The Studio og Colbert komu, sáu og sigruðu Sjá meira