Rétthafar stefna Istorrent á ný 16. maí 2008 20:18 Svavar Lúthersson, eigandi Istorrent.is
Aðstandendur Istorrent skráarskiptavefsins hafa sent frá sér fréttatilkynningu. Þar segir að rétthafasamtökin sem fengu lögbann sett á vefinn á sínum tíma hafi nú höfðað nýtt mál til staðfestingar lögbannsins og að svo virðist sem lögbannið sé því enn í gildi. Áður hafði héraðsdómur vísað málinu frá vegna vanreifunnar og tók Hæstiréttur undir þann dóm þann 8. maí síðastliðinn. Í tilkynningunni segir einnig að þolendur lögbannsins muni krefjast skaðabóta vegna tjóns sem þeir segjast hafa orðið fyrir vegna lögbannsins. Tilkynningin í heild sinni fer hér á eftir: „Máli fjögurra rétthafasamtaka gegn Istorrent ehf. og Svavari Lútherssyni vegna starfsemi vefsins torrent.is var vísað frá dómi 27. mars síðastliðinn vegna vanreifunar. Það var höfðað þann 23. nóvember 2007 eftir að sýslumaðurinn í Hafnarfirði samþykkti að leggja lögbann á starfrækslu vefsins torrent.is þann 19. nóvember sama ár. Ákvörðun héraðsdóms var áfrýjað 2. apríl til Hæstaréttar sem staðfesti frávísunardóminn 8. maí. Frávísun héraðsdóms mátti rekja til vanreifunar sem átti sér stað í málinu þar sem ekki var rætt nægilega um hvort að lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu ættu við um starfsemi vefsins eða ekki. Dómendum þóttu fyrrnefnd lög nægilega mikilvæg í þessu samhengi til að réttlæta frávísun þar sem túlkun þeirra gæti haft mikilvæg áhrif á úrslit málsins. Hæstiréttur staðfesti frávísunardóminn en af öðrum ástæðum. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að sóknaraðilar hafi í greinargerð sinni lýst því yfir að aðilaskipti hafi orðið sóknarmegin í málinu. Hæstiréttur taldi slíka breytingu ekki heimila og vísaði málinu frá að því er varðaði sóknaraðilana Samtök myndréttarhafa á Íslandi, Framleiðendafélagið - SÍK og Félag hljómplötuframleiðenda. Eftir stóð þá aðild STEF en Hæstiréttur taldi að málið væri vanreifað hvað þann aðila varðaði því krafan væri víðtækari en svo að hún tæki aðeins til félagsmanna STEFs. Samkvæmt nýjustu upplýsingum hafa rétthafasamtökin nú höfðað nýtt mál til staðfestingar lögbannsins sem, ef rétt reynist, hefur þá þýðingu að lögbannið gildir enn. Sætir það furðu enda er erfitt að sjá hvernig hægt verður að bæta úr þeim göllum, sem vörðuðu frávísun málsins, í nýrri stefnu. Þolendur lögbannsins munu krefjast skaðabóta vegna tjóns sem þeir urðu fyrir vegna lögbannsins."
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira