Naumt hjá United - Arsenal tapaði fyrir Stoke 1. nóvember 2008 17:17 Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir United í dag og skoraði í níunda heimaleik sínum í röð í deildinni AFP
Mikið fjör var í leikjum toppliðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Manchester United vann 4-3 sigur á spútnikliði Hull, Chelsea valtaði yfir Sunderland 5-0 og Arsenal tapaði 2-1 fyrir Stoke. Allt stefndi í að Manchester United myndi vinna stórsigur á Hull í dag en annað kom á daginn. Ronaldo kom United yfir í leiknum en Daniel Cousin jafnaði fyrir gestina. Michael Carrick, Ronaldo og Nemanja Vidic komu United svo í 4-1 og leikurinn virtist vera í höfn. Hull hefur komið allra liða mest á óvart í vetur og liðið náði að minnka muninn í 4-3 og hrella meistarana með mörkum frá Mendy og Geovanni. Sigur United var þó verðskuldaður og er liðið komið í þriðja sæti eftir sigurinn. Þetta er í fyrsta skipti á leiktíðinni sem Hull tapar tveimur leikjum í röð. Ógæfa Arsenal heldur áfram gegn minni spámönnum deildarinnar og í dag tapaði liðið 2-1 fyrir Stoke á útivelli. Rocardo Fuller og Seyi Olofinjana skoruðu mörk Stoke sem bæði komu upp úr löngum innköstum hins ótrúlega Rory Delap. Gael Clichy minnkaði muninn fyrir Arsenal en varamaðurinn Robin van Persie lét reka sig af velli hjá Arsenal fyrir kjánaskap. Arsene Wenger gerði breytinar á sínu liði til að bregðast við hörku Stoke manna, en þær skiluðu sér ekki. Chelsea valtaði yfir Sunderland 5-0 þar sem Nicolas Anelka skoraði þrennu fyrir Chelsea og þeir Alex og Frank Lampard skoruðu mörk Lundúnaliðsins. Frank Lampard skoraði sitt 100. deildarmark fyrir Chelsea í leiknum. Wigan vann 2-1 útisigur á Portsmouth þar sem Emile Heskey skoraði sigurmarkið í blálokin, en það var hans 100. mark í deildinni á ferlinum. Amr Zaki kom Wigan yfir úr víti en Niko Kranjcar jafnaði fyrir Portsmouth. Tony Adams er því enn að bíða eftir sínu fyrsta stigi sem stjóri, en hans menn áttu fimm skot í tréverkið í leiknum. West Brom og Blackburn skildu jöfn 2-2 þar sem Roman Bednar og Ishmael Miller skoruðu mörk heimamanna í West Brom en Benny McCarthy og Keith Andrews skoruðu mark gestanna. McCarthy fékk reyndar að líta rauða spjaldið eftir rúmlega hálftíma leik eftir að hafa komið Blackburn yfir í leiknum. Loks gerðu Middlesbrough og West Ham jafntefli 1-1 þar sem Hayden Mullins kom West Ham yfir á 21. mínútu en Hossam Mido jafnaði undir lokin. Mörk og markaskorarar dagsins Staðan í deildinni
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira