Enski boltinn

Boothroyd hættur með Watford

Elvar Geir Magnússon skrifar

Adrian Boothroyd er hættur sem knattspyrnustjóri Watford. Ástæðan er lélegt gengi liðsins í ensku 1. deildinni nú í upphafi tímabils.

Watford tapaði fyrir Blackpool um helgina og er nú í 21. sæti í 1. deildinni. Boothroyd er 37 ára og tók við Watford í mars 2005. Hann kom liðinu upp í úrvalsdeildina 2006 en liðið féll á fyrsta ári þar.

Watford komst á síðasta tímabili í umspil um laust sæti í úrvalsdeildinni en beið lægri hlut fyrir Hull.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×