Tottenham náði stigi á Brúnni 31. ágúst 2008 14:25 Það var hart barist á Brúnni í dag. Hér eru þeir Luka Modric og Juliano Belletti.
Tottenham vann í dag sitt fyrsta stig í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu er liðið náði jafntefli, 1-1, gegn Chelsea á Stamford Bridge í dag. Juliano Belletti kom Chelsea yfir með marki eftir hornspyrnu en Darren Bent jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks eftir klaufalegan varnarleik hjá Chelsea. Tottenham var þar með síðasta liðið í ensku úrvalsdeildinni til að ná í sitt fyrsta stig en Chelsea er nú komið á topp deildarinnar með sjö stig. Liverpool getur hins vegar komið sér í efsta sæti deildarinnar með sigri á Aston Villa í dag. Dimitar Berbatov var fjarri góðu gamni hjá Tottenham í dag en sápuóperan um þann ágæta mann mun væntanlega ná hámarki á næsta sólarhring. Giovanni Dos Santos var hins vegar í byrjunarliði Tottenham í dag í stað Aaron Lennon og þá var Chris Gunter einnig í byrjunarliðinu. Michael Ballack lék ekki með Chelsea í dag og ákvað Luiz Felipe Scolari, stjóri Chelsea, að setja Juliano Belletti á miðjuna í hans stað. Frank Lampard átti fyrsta almennilega færi leiksins er hann reyndi að vippa yfir Heurelho Gomes, markvörð Tottenham. Gomes sá hins vegar við honum en tilraunin var mjög góð. Annars byrjaði leikurinn mjög fjörlega og Darren Bent komst til að mynda í ágætt færi sem hann tókst ekki að nýta sér. Nicolas Anelka gerði sig svo líklegan til að skora en það var hins vegar Juliano Belletti sem gerði það. Hann skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu sem Chelsea fékk eftir að Anelka skapaði sér gott skotfæri en skaut yfir. Þá átti Michael Essien einnig fínt skot að marki en boltinn hafnaði í slánni. Eftir þetta var allt útlit fyrir að Chelsea myndi taka öll völd í leiknum en þá jafnaði Tottenham skyndilega í lok fyrri hálfleiks. Boltinn fór heldur klaufalega af Frank Lampard og beint fyrir fætur Darren Bent sem var þar með sloppinn inn fyrir vörn Chelsea og náði hann að senda knöttinn í gegnum fætur Petr Cech og í markið. Síðari hálfleikur var heldur rólegri en bæði lið áttu sín hálffæri og áttu leikmenn Tottenham meira að segja nokkur tækifæri til að stela sigrinum í lokin og verða þar með fyrsta liðið í fjögur ár til að vinna Chelsea í deildarleik á Stamford Bridge. En allt kom fyrir ekki og niðurstaðan því jafntefli.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Sjá meira