Prescott þjáðist af lotugræðgi 20. apríl 2008 13:39 John Prescott.
Fyrrum aðstoðarforsætisráðherra Bretlands viðurkennir að hafa þjást af lotugræðgi í nærri tvo áratugi. Hann þorði ekki að viðurkenna sjúkdóminn þar sem hann er einkum tengdur við konur. John Prescott var aðstoðarforsætisráðherra Bretlands á árunum 1997 til 2007. Hann var lykilmaður í að koma Verkamannaflokknum til valda árið 1997 og var hann einn helsti tengiliður flokksins við verkalýðshreyfinguna.Í grein sem hann skrifar í Sunday Times í dag viðurkennir hann að hafa þjást af lotugræðgi allt frá því á 9. áratugnum. Lýsir hann því hvernig hann jós í sig hamborgurum, súkkulaði, kartöfluflögum og jafnvel niðursoðinni mjólk, einungis til að kasta upp á eftir. Átti hann það til að fara á kínverska veitingastaði og borðan nánast allt sem var í boði á matseðlinum.Lotugræðgi, eða búlimía eins og sumir þekkja sjúkdóminn, hefur einkum verið tengdur við konur og segir Prescott að það hafi hindrað hann í því að viðurkenna vandamál sitt. Hann hafi skammast sín fyrir sjúkdóminn. Prescott segist þó hafa verið manna bestur í að leyna sjúkdómnum, því allan þennan tíma hafi hann ekki misst gramm.Í greininni segir Prescott að eiginkona hans hafi orðið vör við sjúkdóminn fyrir sautján árum. Hún hafi hvatt hann til að leita sér hjálpar, sem og hann gerði. Það hafi hins vegar ekki dugað til og þegar hann tók við embætti aðstoðarforsætisráðherra hafi ástand hans versnað. En, nú hefur hann unnið bug á sjúkdómnum og stundar hann líkamsrækt af kappi. Hann neitar því þó ekki að hann elski mat, en forðast að borða á milli mála.
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Fleiri fréttir Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Sjá meira