Enski boltinn

Crespo laus frá Chelsea

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hernan Crespo.
Hernan Crespo.

Argentínski sóknarmaðurinn Hernan Crespo er nú alfarið laus frá Chelsea en samningur hans er runninn út. Hann hefur síðustu tvö tímabil verið lánaður til Inter á Ítalíu.

Á heimasíðu Chelsea er Crespo þakkað fyrir hans framlag í bláa búningnum og óskað velfarnaðar í framtíðinni. Hann varð fyrsti leikmaður sögunnar til að skora í Meistaradeildinni fyrir fimm mismunandi lið.

Crespo er 32 ára og mun nú fara í viðræður við þau lið sem áhuga hafa en líklegasti áfangastaður hans er Roma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×