Enski boltinn

Queiroz að taka við Portúgal?

Elvar Geir Magnússon skrifar
Sir Alex Ferguson, Cristiano Ronaldo og Carlos Queiroz.
Sir Alex Ferguson, Cristiano Ronaldo og Carlos Queiroz.

Carlos Queiroz, aðstoðarknattspyrnustjóri Manchester United, gæti verið á leið frá Englands- og Evrópumeisturunum. Knattspyrnusamband Portúgals vill fá hann sem næsta landsliðsþjálfara.

Luiz Felipe Scolari lét af störfum eftir Evrópumótið og er tekinn við Chelsea. „Ég get lítið sagt um þetta mál, portúgalska sambandið og United þurfa að leysa þetta sín á milli," sagði Queiroz.

Queiroz kom fyrst á Old Trafford sumarið 2002 en tók síðan við Real Madrid. Hann kom síðan aftur til United 2004.

Hann er í miklum metum hjá Manchester United og ætlar félagið að gera allt sem það getur til að halda honum. Þegar BBC fréttastofan hafði samband við félagið vildi það ekkert gefa út um framtíð Queiroz.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×