Segist ekki skrifa um handbolta á klámfenginn hátt 17. janúar 2008 15:20 Hlynur Sigmarsson „
Ef þú skoðar fréttir, hvort sem það er í sjónvarpi eða á netinu og berð það saman við minn fréttastíl þá er ekkert athugavert við þetta," segir Hlynur Sigmarsson umsjónarmaður vefsíðunnar handbolti.is. Hlynur hefur skrifað mikið um handbolta í vetur en hefur verið gagnrýndur fyrir að vera nokkuð klámfenginn í spurningum sínum. „Ég er með eitthvað sem heitir hin hliðin sem er oft á tíðum ekkert svakalega áhugavert. Ég reyni að bæta það upp með því að spyrja t.d hvað sé það fyrsta sem viðmælandinn hugsar þegar orðið nakinn karlmaður kemur upp. Ef það er klám í nútímahugsun þá ætti fólk að fara að hugsa um börnin sín sem eru fjórtán ára að sofa hvert hjá öðru," segir Hlynur sem skilur ekkert í þessari gagnrýni. Hlynur vill meina að ákveðnir menn hafi verið að herja á hann og segir hann þá hrædda við samkeppni. Nefnir hann í því samhengi forsvarsmenn síðunnar sport.is. „Ég sé ekki alveg tilganginn í því, ég held að menn ættu bara að fara að hugsa um sjálfa sig." Hlynur er mikill áhugamaður um handbolta en hann sér einn um síðuna handbolti.is sem hann segist þurfa að borga með. Þar ráði hugsjónin ein ríkjum. „Ef einhverjum finnst þetta klámfengið þá verður það bara að vera þannig. En ef við horfum á vinsælustu fréttirnar allsstaðar þá eru þær oftar en ekki í þessum stíl. En það er í þessu eins og öllu öðru að það geta ekki allir verið ánægðir." Hlynur segir síðuna hafa gengið ágætlega þó umferðin um hana sé mismunandi. „Ef það er ekkert umtal um þig þá er ekkert að gerast. Ég reyni bara að gera mitt besta," segir Hlynur sem varð að skjótast og undirbúa teiti fyrir stuðningsmenn landsliðsins í Þrándheimi en hann er að sjálfsögðu staddur á evrópumeistaramótinu sem hefst í dag.
Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Fleiri fréttir Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Sjá meira