Markalaust á Villa Park Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. ágúst 2008 16:52 Þrír góðir - Rafa Benitez, Martin O'Neill og Gareth Barry. Nordic Photos / Getty Images
Aston Villa og Liverpool gerðu í dag markalaust jafnatefli í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn var heldur tilþrifalítill en Liverpool missti þar með af tækifæri til að komast eitt á topp ensku úrvalsdeildarinnar. Martin O'Neill, stjóri Aston Villa, gerði sex breytingar á liði sínu frá leiknum gegn FH á fimmtudaginn - eins og búist var við. Gareth Barry var vitanlega í byrjunarliðinu gegn Liverpool sem hann var svo oft orðaður við í sumar. Javier Mascherano og Lucas Leiva voru í byrjunarliði Liverpool í fyrsta sinn eftir Ólympíuleikana en Steven Gerrard var frá vegna meiðsla. Þá var Andrea Dossena í liðinu í stað Fabio Aurelio. Heimamenn byrjuðu ef til vill örlítið betur í leiknum sem var annars afar tíðindalítill í fyrri hálfleik. John Carew fékk þó gott færi seint í hálfleiknum er hann komst einn í gegnum vörn Liverpool en lét Pepe Reina verja frá sér. Liverpool varð þó fyrir áfalli í fyrri hálfleik er Fernando Torres fór meiddur af velli og ekki ljóst hvort að um langvarandi meiðsli séu að ræða. Bæði lið fengu sín hálffæri í upphafi síðari hálfleiks en annars gekk liðunum illa að skapa sér einhver almennileg færi. Robbie Keane komst þó einn í gegnum vörn Villa eftir sendingu Mascherano en var of lengi að athafna sig og var stöðvaður af Nigel Reo-Coker. Rafa Benitez og Keane vildu vítaspyrnu en fengu ekki. Fleiri urðu færin ekki og Liverpool er nú með sjö stig á toppi deildarinnar, rétt eins og Chelsea. Aston Villa er með fjögur stig.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Fleiri fréttir Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Sjá meira