Viðurkenna að óeirðir hafi verið víðar en í Tíbet 20. mars 2008 11:31 Kveikt hefur verið í opinberum byggingum og efnt til mótmæla víðar í Kína en einungis í Tíbet. MYND/AP
Kínversk stjórnvöld viðurkenndu í fyrsta sinn í morgun að óeirðir sem verið hafa í Tíbet hefðu breiðst út fyrir héraðið. Þannig segir Xinhua-fréttastofan kínverska að skemmdir hafi verið unnar á opinberum byggingum og verslunum í Sichuan-héraðinu á sunnudaginn var. Fregnir hafa einnig borist af óeirðum í nágrannahéraðinu Gansu og Qinghai. Þá greindu kínversk yfirvöld frá því í morgun að 24 hefðu verið handteknir fyrir þátttöku í mótmælunum í höfuðborg Tíbets, Lhasa, á síðustu dögum. Enn fremur að 170 aðrir mótmælendur hefðu gefið sig fram. Óeirðirnar í Tíbet hófust þann 10. mars og herma fregnir að tugir ef ekki hundrað manns hafi fallið í átökunum sem tengjast sjálfstæðisbaráttu Tíbeta. Kínversk stjórnvöld hafa takmarkað mjög starfsemi vestrænna fjölmiðla á svæðinu og eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC var síðasta erlenda blaðamanninum vísað burt frá Lhasa í dag. Öryggissveitir á vegum kínverskra stjórnvalda eru sagðar fara hús úr húsi til að leita þátttakenda í mótmælunum en Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, hefur hvatt til stillingar og það hefur Evrópusambandið einnig gert í yfirlýsingu. Ísland á aðild að þeirri yfirlýsingu eftir því sem utanríkisráðuneytið segir. Dalai Lama, sem kínversk stjórnvöld hafa sakað um að skipuleggja óeirðirnar, mun funda með Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, þegar hann heimsækir Bretland í maímánuði. Frá þessu greindi Brown og sagði jafnframt að Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, væri reiðubúinn til viðræðna vegna málsins.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira