Mótmælum á þaki breska þingsins lokið 27. febrúar 2008 15:27
Sex mótmælendur sem komust upp á þak breska þingsins í London í morgun og mótmæltu þar stækkun Heathrow flugvallar hafa verið handteknir af lögreglu. Mótmælin stóðu yfir í um þrjá klukkutíma en fólkið hlekkjaði sig við þak byggingarinnar. Rannsókn er hafin á því hvernig fólkið komst inn. Talið er að það hafi komið inn á gestapössum og klifrað upp á þakið af brunastiga. Mótmælendurnir eru úr umhverfishópnum Plane Stupid sem berst gegn hlýnun jarðar. Þeir klifruðu upp á þak Westmminster byggingarinnar og komu fyrir borðum sem á stóð "Höfuðstöðvar bresku flugumferðarstjórnarinnar" og "Engin þriðja flugbraut". Heimildarmenn Sky fréttastofunnar telja að borðunum hafi verið komið fyrir inni í byggingunni áður en mótmælendurnir létu til skarar skríða. Gordon Brown forsætisráðherra var með skilaboð til þeirra í vikulegum spurningatíma þar sem hann sat fyrir svörum þingmanna í hádeginu. "Ákvarðanir í þessu landi ættu að vera teknar í þingsölum þessa húss, en ekki á þakinu," sagði hann. Leo Murray einn mótmælenda talaði við Sky fréttastofuna af þaki þinghússins. Hann sagði að hópurinn hefði fengið sér tebolla á kaffistofunni og síðan tekið lyftuna upp á þakið. Atvikið hefur vakið áleitnar spurningar um öryggi en lengi hefur verið óttast að þingið gæti orðið skotmark hryðjuverkamanna. "Við erum komin að rótum lýðræðis til að benda á hversu fáránlega ólýðræðisleg þessi ríkisstjórn er orðin," sagði hann og benti á að áætlanirnar væru í algjöru ósamræmi við stefnu Breta í loftslagsmálum. Mótmælendurnir sýndu ekki mótþróa þegar þeir voru leiddir á brott af lögreglu.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Fleiri fréttir Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Sjá meira