Innlent

Skiljanleg og rökrétt ákvörðun Seðlabankans

Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segja þá ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti í morgun skiljanlega og rökrétta í ljósi þróunar mála.

Ráðherrarnir ræddu við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Þar sagði Geir að staða efnahagsmála væri ekki komin á það stig að það kallaði á aðgerðir að hálfu ríkisstjórnarinnar. Seðlabankinn hefði sjálfstættt gripið til sinna aðgerða sem væru farnar að skila árangri. Vísaði Geir þar til styrkingar krónunnar og hækkunar á hlutabréfamörkuðum.

Þá ýjaði Geir að því að stjórnvöld hygðust gefa út skuldabréf, það yrði samstarf ríkisstjórnar og Seðlabankans og greint yrði frekar frá því síðar í dag.

Neyðarviðbrögð við ástandinu

Geir benti enn fremur á að dagurinn í dag væri aukavaxtaákvörðunardagur og um væri að ræða neyðarviðbrögð við ástandinu. „Allir seðlabankar í heiminum, þar á meðal okkar, hafa verið að gera sitt til þess að bjarga lausafjárstöðunni," sagði Geir.

Geir var enn fremur spurður út í hátt skuldatryggingarálag íslensku bankanna. Hann sagði það út í hött og í engum tengslum við raunveruleikann. Til skoðunar væri að ríkið tæki lán til að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans.

Aðspurður sagði Geir að ástandið í efnahagsmálum væri vissulega alvarlegt að því leyti að alþjóðlegur hörgull á fjármagni væri farinn að segja til sín hér. Þetta væru áhrif utan úr heimi sem íslensk stjórnvöld hefðu ekki getað stjórnað. Íslensk stjórnvöld myndu þó gera það sem þyrfti að gera þegar tilefni væri til þess.

Enn fremur sagði forsætisráðherra ekkert sérstakt bjargráð í því að lækka álögur á eldsneyti eins og farið hefur verið fram á. Eldsneytisgjöld væru tekjustofn til Vegagerðar sem þó stæði aðeins undir hluta framkvæmda.

Skýr skilaboð frá Seðlabankanum

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tók undir með Geir að ákvörðun Seðlabankans væri skynsamleg. Bankinn væri að senda skýr skilaboð um að hann ætlaði sér að hafa stjórn á efnahagsmálum. Þá benti Ingibjörg Sólrún á að það væri ekkert einsdæmi að stýrivextir væru svo háir, þeir hefðu verið 19 prósent í Bandaríkjunum um tíma.

Ingibjörg Sólrún var spurð út í upplýsingagjöf sendiráða í tengslum við fréttir af íslensku efnahagslífi. Hún sagði Íslendinga eiga að hluta til í ímyndarvanda erlendis en sendiráðin væru vel í stakk búin til þess að að gefa erlendum aðilum upplýsingar um stöðu mála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×