Lífið

Tyra Banks er ekki hin nýja Oprah

Tyra Banks.
Tyra Banks.

Tyra Banks segist ekki vera hin nýja Oprah Winfrey þrátt fyrir að vera með eigin spjallþátt og koma fram í einum vinsælasta sjónvarpsþætti Bandaríkjanna, America´s Next Top Model.

„Í fyrstu þá þoldi ég þetta ekki," sagði Tyra þegar Entertainment Weekly spurði hana um stöðugan samanburð við Oprah. Tyra segir að í upphafi hafi hún grátið sig í svefn vegna þrýstingsins á að vera líkt saman við Tyra. Hún segir þó að ef hún væri hvít þá væri fólk ekki að líkja þeim saman.

Vegsemd Tyra í sjónvarpi hefur aukist mjög að undanförnu því að hún hefur verið að fá þungavigtargesti eins og Barack Obama, Hillary Clinton, John Edwards og Mike Huckabee í þáttinn sinn. Þau hafa eins og kunnugt er öll staðið í ströngu að undanförnu vegna forvals fyrir kosningar í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.