Óttast að Joey Barton stytti sér aldur 6. júlí 2008 15:18 NordcPhotos/GettyImages
Sam Allardyce, fyrrum knattspyrnustjóri Newcastle, segist óttast að Joey Barton stytti sér aldur ef hann verði látinn fara frá félaginu í vegna vandamála hans utan vallar. Barton situr nú af sér sex mánaða fangelsisdóm fyrir að ráðast á ungling fyrir utan McDonalds-stað í Liverpool, en hann viðurkenndi á dögunum sekt sína eftir að hafa ráðist á fyrrum liðsfélaga sinn á æfingasvæði Manchester City. Allardyce, sem keypti Barton til Newcastle síðasta sumar, segir að allt gæti siglt endanlega í óefni hjá leikmanninum ef hann verði leystur undan samningi. "Ef Newcastle lætur Joey fara, verður það bara enn ein refsingin fyrir mann sem er að reyna að ná tökum á lífi sínu. Það gæti reynst hættulegt að taka frá honum fótboltann, því knattspyrnan er líf hans og yndi. Ef þú tekur boltann frá honum, gæti það einfaldlega sökkt honum í þunglyndi og við þekkjum dæmi þess að menn hafi framið sjálfsmorð eftir að hafa verið kippt út úr boltanum," sagði Allardyce og minntist fyrrum félaga síns Dave Clement í samtali við News of the World. "Dave var með mér hjá Bolton og hann var aðeins 34 ára þegar hann stytti sér aldur. Það er ótrúlega dapurt þegar svona gerist og við megum ekki halda að það geti ekki gerst aftur," sagði Allardyce, en mál Clement vakti óhug árið 1982 þegar hann framdi sjálfsmorð með því að taka inn eitur. Allardyce vill að Newcastle gefi Barton annað tækifæri. "Það voru aldrei vandamál með Joey þegar hann var hjá mér. Það var bara þegar hann fór til Liverpool og var að drekka. Newcastle er síðasta tækifæri Joey til að koma sér á beinu brautina. Ég hugsa að taki enginn við honum ef hann nýtir ekki þetta tækifæri. Ef hann snýr lífi sínu ekki við núna - mun hann líklega aldrei gera það," sagði Allardyce.
Enski boltinn Mest lesið Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Kevin Keegan látinn Enski boltinn Tove nýtti tímann sinn á Íslandi til hins ítrasta Sport Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Fótbolti Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni Fótbolti Guardiola hafði rétt fyrir sér um Rodri Fótbolti Gætu misst bæði Messi og landsliðsþjálfarann sinn Fótbolti Spánverjar heimsmeistarar Fótbolti Rooney um hálfleikssýninguna: „Þetta var drasl“ Fótbolti Fleiri fréttir Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Sjá meira