Innlent

Fimm slagsmálahundar handteknir um helgina

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. MYND/Eyþór

Fimm slagsmálahundar sem lögregla hafði afskipti af í miðborg Reykjavíkur um helgina, brutu gegn lögreglusamþykkt að því er segir í frétt lögreglunnar.

Mennirnir fimm voru allir handteknir aðfaranótt sunnudags þar sem þeir létu ófriðlega og neituðu að hlýða fyrirmælum. Þremur þeirra hafði áður verið vísað út af skemmtistað vegna slagsmála en hinir tveir slógust þegar lögreglan kom á vettvang og fengust ekki til að láta af þeirri iðju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×