Stjörnurnar styrkja útrás leyniútvarpsstöðvar 18. mars 2008 16:14 Bubbi er meðal þeirra sem koma fram.
Styrktartónleikar verða haldnir fyrir eina best földu útvarpsstöð landsins, XA radíó, föstudaginn langa í Háskólabíói. Eina íslenska dagskrá XA radíó er upplestur úr AA-bókinni, en megindagskrárefnið eru hins vegar upptökur af erlendum félögum úr 12-spora samtökum eins og Alcoholics Anonmyous (AA), Overeaters Anonmyous (OA), Narcotics Anonmyous (NA) og Al-anon þar sem þeir tala um reynslu sína. „Við hófum útsendingar á föstudaginn langa árið 2003 og höfum verið svo til non stop í loftinu síðan," segir Magnús, einn aðstandenda stöðvarinnar. Fyrir tveimur árum síðan hóf hún útsendingar á Akureyri, og segir Magnús að nú hafi aðstandendum fundist tími til að breiða boðskapinn víðar og koma fyrir sendi á Suðurlandi. XA radio myndi þá nást um allt Suðurland og uppsveitir, í sumarhúsabyggðum, og ekki síst á Litla-Hrauni, en Magnús segir marga þar hafa þörf að heyra boðskapinn. Aðspurður hvort sá boðskapur sé ekki eitthvað sem maríneraðir sumarbústaðagestir hefðu not fyrir segir Magnús að skilaboðin séu kannski ekki velkomin að kvöldi dags. „Ég efast ekki um að það séu margir sem vilja heyra þetta morguninn eftir," segir hann kíminn. Stöðin er eingöngu rekin fyrir frjáls framlög, og hefur engar tekjur af auglýsingum. Sendirinn kostar með uppsetningu á aðra milljón, því bregða aðstandendur á það ráð að halda tónleika til að fjármagna hann. Fjöldi listamanna kemur fram á tónleikunum og gefa þeir allir vinnu sína. Má þar nefna tónlistamenn á borð við Bubba, Pál Óskar Hjálmtýsson, KK, Ellen Kristjánsdóttur og Eyþór Gunnarsson, Ragnheiði Gröndal, rapparann Poetrix, dúettinn Pikknikk og Einar Ágúst. Tónleikarnir hefjast klukkan 22, beint á eftir afmælisfund AA samtakanna í Laugardalshöll. Miðaverð er 2500 krónur, og rennur það óskipt til kaupa á sendinum. Miðarnir fást á miða.is og sölustöðum.
Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Lífið Fleiri fréttir Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira