Rússar brugga fyrsta kvennavodkann 18. mars 2008 14:24 Rússneskar konur fagna væntanlega komu Damskaya-vodka.
MOSKVA (Reuters) Rússneski vodkaframleiðandinn Igor Volodin er fyrstur áfengisframleiðenda heimsins til að markaðssetja vodka sérstaklega ætlað konum en drykkurinn mun bruggaður með það fyrir augum að henta vel með salatinu eftir líkamsrækt. Þessi ódáinsdrykkur ber vörumerkið Damskaya-, eða kvennavodka og fer nú sigurför um landið enda eru skráðir áfengissjúklingar Rússlands tvær og hálf milljón en sérfræðingar segja að raunveruleg tala þeirra sé sjöfalt hærri og nái því yfir rúmlega tíunda hluta þjóðarinnar sem telur 142 milljónir. Áfengissýki rússneskra kvenna er sérstakt vandamál innan heildarvandans en helsti markhópur Damskaya-vodkans eru menntaðar framakonur með fé milli handa og konur rússneskra milljónamæringa en hinar síðarnefndu ku slá flestum Rússum við þegar kemur að þorsta í göróttar veigar. Útlit Damskaya-vodkaflösku á að höfða sterkt til veikara kynsins en flaskan er straumlínulaga með fjólubláum blæ. Þá hafa auglýsingar sem vekja athygli á þessari nýjung vakið verðskuldaða athygli á strætum og neðanjarðarlestarstöðvum Moskvu en þær sýna Damskaya-flösku íklædda hvítu pilsi sem golan feykir upp á við. „Konur þurfa sinn eigin drykk," fullyrðir Volodin. „Í Moskvu eru bleikir leigubílar sem sérstaklega eru ætlaðir konum, við höfum vindlinga fyrir konur og af hverju höfum við þá ekki vodka handa konum?" Nýja varan kemur með þrenns konar bragði, sítrus, vanillu og möndlu, auk einnar útgáfu án bragðefna sem ætluð er til hanastélsgerðar og fullyrðir framleiðandinn að drykkurinn sé algjörlega laus við öll hefðbundin aukaefni sem yfirleitt eru kveikjan að timburmönnum og öðrum neikvæðari fylgifiskum drykkju.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira