Erlent

Hillary segir ekki hægt að vinna Íraksstríðið

Hillary Clinton segir nú að ekki sé hægt að vinna stríðið í Írak og þegar upp sé staðið geti það kostað bandaríska skattgreiðendur allt að sjötíu þúsund milljarða króna.

Þeir hafi alls ekki efni á slíku. Clinton vill nú að allir bandarískir hermenn verði kallaðir heim frá Írak en hún var áður hlynnt stríðsrekstrinum. Hún segir nú að efnahagsleg framtíð Bandaríkjanna sé í húfi og þar með öryggi þjóðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×