Uggur meðal starfsmanna Icelandair 23. júní 2008 12:16
Uggur er meðal starfsmanna Icelandair en félagið hefur boðað fjöldauppsagnir um næstu mánaðamót. Starfsmenn félagsins funda á morgun. Icelandair hefur ákveðið að grípa til fjöldauppsagna um næstu mánaðarmót. Hefur félagið nú þegar sent tilkynningu þessa efnis til starfsmannafélaga. Formaður félags íslenskra atvinnuflugmanna staðfesti í samtali við fréttastofu í morgun að slík tilkynning hefði borist en vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að um 300 starfsmenn Icelandair Group, móðurfélags Icelandair, verði sagt upp. Er um að ræða flugmenn, flugfreyjur og starfsfólk í fyrirtækjum sem þjónusta flugvélar Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Á síðastnefnda staðnum verður 80-100 manns sagt upp samkvæmt tilkynningu til Vinnumálastofnunar. Sigrún Jónsdóttir, Formaður Flugfreyjufélags Íslands, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að það væri mikill uggur í fólki. Hún sagði ennfremur að þær tölur sem fram hefðu komið í fjölmiðlum varðandi fjölda flugfreyja sem sagt verði upp störfum væru of háar. Hún vildi hins vegar ekki gefa upp um hversu stóran hóp væri að ræða og sagðist fyrst vilja tala við sína félagsmenn um málið. Boðað hefur verið til starfsmannafundar hjá Icelandair á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu hyggst félagið einnig gera breytingar á áætlunarflugi og fella suma áfangastaði niður til að hagræða í rekstri. Ekki hefur náðst í upplýsingafulltrúa Icelandair vegna málsins. Tíðindin virðast þó hafa haft jákvæð áhrif á gengi Icelandair Group í Kauphöllinni en félagið hefur hækkað mest allra fyrirtækja í morgun eða um nærri þrjú prósent.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira