Gáfumenni og rokkarar á listum stúdentafylkinganna 30. janúar 2008 16:59 Davíð Þór Jónsson guðfræðinemi.
Barátta Röskvu og Vöku um meirihluta í stúdentaráði er farin á fullt skrið. Athygli vekur að báðar fylkingar hafa lagt mikið kapp á að fá virðulega kandídata á listann. Röskva hefur fengið til liðs við sig Davíð Þór Jónsson gáfumenni og guðfræðinema á lista fyrir háskólaráð. Frosti í Mínus vermir svo fjórða sætið á lista Vöku. Davíð Þór Jónsson segir að honum hafi verið boðið heiðurssæti á lista Röskvu og ekki séð ástæðu til þess að afþakka þann heiður. „Þegar ég var síðast í háskólanum, fyrir 15 árum, tók ég þátt í starfi Röskvu. Þegar ég settist svo aftur á skólabekk í haust þá var mér boðið heiðurssæti. Ég er þó ekki að fara að hella mér í stúdentapólitíkina heldur er ég meira upp á punt, móralskur stuðningur frekar en að vera í forsvari fyrir listann." Dagný Ósk Aradóttir, formaður stúdentaráðs og fulltrúi Röskvu, segir að barátta sinnar fylkingar gangi vel. „Við leggjum auðvitað áherslu á jafnrétti til náms og erum þar af leiðandi gegn skólagjöldum og viljum jafnt aðgengi að skóla," segir Dagný. Hún segir auk þess að stúdentaráð leggi áherslu á byggingu nýrra stúdentaíbúða en treglega gangi í þeim efnum vegna tíðra meirihlutaskipta í borginni. Ingólfur Birgir Sigurgeirsson, sem skipar fyrsta sæti á lista Vöku fyrir stúdentaráð, er einnig ánægður með baráttuna. Hann segir Vöku leggja mikla áherslu á mennta- og kennslumál. „En svo leggjum við líka áherslu á opna umræðu um kjaramál stúdenta," segir Ingólfur. Hann telur að þær hækkanir sem hafi verið á grunnframfærslu stúdenta séu ekki í takti við verðlagsþróun.
Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Forrest Gump rokksins allur Tónlist Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fleiri fréttir Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Sjá meira