Lúðvík ósammála ráðherra um dómaraskipan 16. janúar 2008 13:59 MYND/Stefán
Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er ósamála Árna Mathiesen, settum dómsmálaráðherra, í dómaramálinu og hefur átt hreinskiptar umræður við hann um það. Þetta kom fram í máli þingmannsins við upphaf þingfundar í dag. Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, kvaddi sér hljóðs undir liðnum störf þingsins og innti Lúðvík eftir skoðun hans á málinu. Vísaði hún til þess að Lúðvík hefði tjáð sig um málið opinberlega og það hefði mátt skilja á honum að honum mislíkaði hvernig staðið var að því að veita dómaraembættið. Sagði Siv að í framhaldi af ósanngjörnum og ósvífnum orðum Árna Mathiesen í Katljósi í gær væri fróðlegt að heyra hvort Lúðvík væri sammála ráðherra eða dómnefndinni í málinu, en dómnefndin hefur gagnrýnt ráðherra fyrir framgöngu hans í málinu. Þá spurði hún einnig hvort hann myndi beita sér fyrir því að frumvarp hans um breytingar á skipan hæstaréttardómara næði fram að ganga. Sjálfstæðismenn væru einir á móti því en meiririhluti væri fyrir því á þingi. Lúðvík Bergvinsson svarað því til að hann myndi að sjálfsögðu beita sér fyrir því að frumvarpið myndi ganga fram því það væri mikilvægt fyrir Hæstarétt sem virtasta dómstól landsins. Þá sagðist hann hafa átt hreinskiptar og opnar viðræður Árna M. Mathiesen um hina umdeildu dómaraskipan. Það gerðu menn í samstarfi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, ættu opin samtöl. Sagðist Lúðvík ekki sammála mati ráðherra en benti á að hann þekkti ekki frekar en aðrir í þaula umsögn dómnefndarinnar. Birgir Ármannson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að málefnalega hefði verið staðið að skipuninni. Þá sagðist hann ekki fylgjandi því að færa skipan dómara inn á svið Alþingis. Það ætti ekki að gera hana að pólitísku bitbeini og yrði ekki skipuninni til framdráttar. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri - grænna, sagði enga vanþörf á að endurskoða reglur og lög um skipan dómara. Benti hann á í kjölfar orða Lúðvíks að þingmenn stjórnarflokkkanna bæru ábyrgð á ráðherrunum og ákvörðunum þeirra. Því vaknaði sú spurning hvort fleiri þingmenn Samfylkingarinnar væru ósammála ráðherra og hvort ráðherra nyti nægilegs trausts til að halda áfram störfum. Sagði Árni Þór að ákvörðun ráðherra væri að hans mati ómálefnaleg og ólögmæt. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagðist hafa tekið dómaraskipan upp í stjórnarskrárnefnd. Hann teldi að skipan dómara ætti að fara fram með atkvæðagreiðslu á Alþingi og þar þyrfti tvo þriðju atkvæða. Fleiri stjórnarandstöðuþingmenn tóku til máls og gagnrýndu settan dómsmálaráðherra harðlega fyrir framgöngu hans í málinu en þingmenn Sjálfstæðisflokksins sögðu ráðherrann hafa staðið rétt að málum. Niðurstaða dómnefndar um hæfni umsækjenda væri ekki bindandi fyrir ráðherra.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Sjá meira