Lífið

Íþróttaálfurinn blandar sér ekki í bresk stjórnmál

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar
Kristján segir fréttina bull.
Kristján segir fréttina bull.
„Þetta er algjör þvæla frá upphafi til enda," segir Kristján Kristjánsson upplýsingafulltrúi Latabæjar. Hann segir ekkert hæft í frétt breska blaðsins Daily Telegraph þar sem greint er frá því að íþróttaálfurinn verði andlit stefnu íhaldsflokksins í offitumálum barna, sem verður kynnt á fimmtudaginn.

„Við höfum samþykkt að taka þátt í tuttugu manna lokuðum fundi sérfræðinga, fulltrúa hjartaverndarsamtaka, sykursjúkra og stórfyrirtækja," segir Kristján. Íhaldsflokkurinn efnir til fundarins, en Kristján segir að ekki sé á nokkurn hátt verið að leggja nafn Latabæjar við flokkinn.

„Við vorum búnir að tryggja okkur í bak og fyrir að þeir myndu ekki nota sér nafn okkar." segir Kristján. Hann segist þó ekki halda að flokkurinn hafi reynt að misnota tengslin við Latabæ. „Þeir þvertaka fyrir það og ég trúi því alveg. Þetta var samkomulag sem var búið að gera."





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.