Uppruni föstudagsins-þrettánda-hjátrúar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 13. júní 2008 14:15
Paraskevidekatriaphobia nefnist sá ótti sem tengist tölunni 13. Sú hjátrú sem tengd er föstudeginum 13. er ein sú útbreiddasta í heiminum. Sævar Helgi Bragason rekur sögu og hugsanlegar skýringar þessarar hjátrúar í pistli á Vísindavef Háskóla Íslands. Ritar Sævar þar að föstudag beri upp á þrettánda dag mánaðar einu sinni til þrisvar á ári. Talan þrettán hafi svo sterk tök að í sumum borgum sé til dæmis þrettándu breiðgötunni sleppt og alkunna sé að hótel hafi það fyrirkomulag að á eftir 12. hæðinni komi sú 14. (sem þá er í reynd vitanlega sú 13.). Hindúar trúi því að setjist þrettán manns saman að kvöldverðarborði verði þeir allir látnir innan árs. Þá hafi þrettán manns sest að síðustu kvöldmáltíðinni og sá þeirra sem sveik Jesú Krist hafi svo verið krossfestur á föstudegi en það voru aftökudagar Rómverja og síðar einnig Breta sem hengdu menn á föstudögum. Sævar teflir því einnig fram að ýmsir þekktir fjöldamorðingjar hafi borið þrettán stafa nöfn, svo sem Jack the Ripper (rétt nafn reyndar ekki þekkt), Charles Manson, Jeffrey Dahmer, Theodore Bundy og Albert De Salvo. Heppni er ekki til „Vísindamaður, til dæmis stærðfræðingur, mundi segja þér að „heppni" sé ekki til. Gæfa dreifist af handahófi og er óháð dögum. Hinir hjátrúarfullu myndu samt sem áður finna marga óheppilega atburði sem tengjast tölunni þrettán og föstudegi, þótt bæði sé hægt að finna alveg jafn marga ef ekki fleiri góða atburði sem tengjast föstudegi eða tölunni þrettán og ekki líka jafnmarga slæma atburði sem gerast á öðrum dögum," ritar Sævar. Einnig nefnir Sævar kenningar um að slæmt orðspor föstudagsins þrettánda megi rekja til Eden. Þar er að sjálfsögðu ekki átt við Eden í Hveragerði heldur hinn kunna aldingarð biblíunnar. Sagan hermir að Eva hafi freistað Adams á föstudegi með hinum forboðna ávexti. Aðrir segja að Nóaflóðið hafi hafist á sjötta degi vikunnar sem er föstudagur. Það er ef til vill huggun að í sumra hugum er talan 13 happatala og eru Kínverjar meðal þeirra sem það telja. Eins skiptu Forn-Egyptar andlegu lífi sínu í þrettán stig þar sem tólfta stigið var jarðneskt líf á undan hinu þrettánda sem var eilíft framhaldslíf, þrungið sælu.
Mest lesið Jónas Sen sakaður um derring og meinfýsni Lífið Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Tónlist Vill Ísrael og Úkraínu úr Eurovision Lífið „Hélt að við værum að trufla verðandi bónorð hjá öðrum“ Lífið „Ekki ætlunin að særa heldur hrista aðeins upp í umræðunni“ Lífið Glæsileg í Cannes í sérsaumaðri íslenskri hönnun Tíska og hönnun „Allt annað að sjá einhvern sem var eins og ég“ Lífið Heillandi heimili Hönnu Stínu Lífið Hersir og Rósa greina frá kyninu Lífið Carmina Burana sem maður vill helst gleyma – hvað fór úrskeiðis í Hörpu? Gagnrýni Fleiri fréttir „Hélt að við værum að trufla verðandi bónorð hjá öðrum“ Vill Ísrael og Úkraínu úr Eurovision Stóra stundin hjá þeim Rebekku og Ásgeiri Hersir og Rósa greina frá kyninu „Allt annað að sjá einhvern sem var eins og ég“ „Ekki ætlunin að særa heldur hrista aðeins upp í umræðunni“ Heillandi heimili Hönnu Stínu Jónas Sen sakaður um derring og meinfýsni Arnar og Sigrún Heba selja glæsihús í Kópavogi Svanhildur Hólm fór holu í höggi Ástin blómstrar hjá Rósu Líf og Anahitu Væri til í fjörutíu eiginmenn og nokkra sykurpabba Biggi ekki lengur lögga Ásgeir og Hildur eiga von á stúlku Stefán Einar tók vel á því með Ísfélaginu Stjörnulífið: Bikiní dress vikunnar Ótrúlegustu atvik geta veitt innblástur Geggjaðar gellur í gæsun Grímu Thorarensen Felix kveður Eurovision Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Voru í sjötta sæti í undankeppninni Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Ísland fékk stig frá þessum löndum Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Íslendingar á samfélagsmiðlum: „Við hljótum að vinna þetta?“ Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Sjá meira