Lífið

LA - Egilsstaðir - Reykjavík

SEV skrifar
Tommy er hress
Tommy er hress

Ofurpartýinu með Tommy Lee og DJ Aero á Nasa í kvöld virðist borgið. Tommy þurfti að lenda á Egilsstöðum í morgun, vegna veðurs í Keflavík. Hann slapp þaðan fyrir skemmstu rétt í tæka tíð áður en útsendarar fréttastofanna náðu í skottið á honum. Rokkarinn er væntanlegur til Reykjavíkur upp úr hádegi, og ætti því að ná að leggja sig aðeins fyrir partýið í kvöld.

Tommy undi hag sínum vel á Egilsstöðum. „Hann var bara í góðu stuði að fá sér samloku og Burn", segir Margeir Ingólfsson, annar skipuleggjandi tónleikanna, og bætir við að það hafi kannski verið ágætt fyrir hann að kynnast aðeins heimaslóðum Magna okkar Ásgeirssonar.

Það hefði þó ekki væst um rokkarann ef hann hefði setið fastur lengur. Magni mun einmitt hafa verið búinn að finna fyrir hann gistingu,  ef svo hefði farið að hann hefði setið fastu í partýbænum Egilsstöðum fram á morgun.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.