Erlent

Hamas lýsir ábyrgð á skotárás í skóla

Drengir syrgja við jarðaför eins fórnarlambsins í dag.
Drengir syrgja við jarðaför eins fórnarlambsins í dag. MYND/AP

Hamasliðar hafa lýst yfir ábyrgð á skotárásinni á prestaskóla gyðinga í Jerúsalem sem varð átta að bana í gær. Ónafngreindur liðsmaður Hamas sagði fréttastofu Reuters í dag að samtökin lýstu yfir fullri ábyrgð á árásinni í Jerúsalem. Samtökin myndu birta nánari atvik árásarinnar síðar.

Samkvæmt frásögn sjónarvotta réðist byssumaðurinn inn á bókasafn skólans í gær og hóf handahófskennda skotárás á nemendur sem sátu þar að lestri. Um tíu mínútur liðu þar til öryggisvörðum tókst að skjóta hann til bana. Þá lágu átta nemendur á aldrinum 15 til 16 ára í valnum og níu aðrir særðust, sumir mjög alvarlega.

Mikil fagnaðarlæti brutust út á Gaza svæðinu er fregnir af árásinni bárust þangað.

Ísraelsmenn segja að atburðurinn muni ekki draga úr aðgerðum þeirra á Gaza-svæðinu.

Margar þjóðir hafa fordæmt atburðinn og kalla hann ófyrirgefanlegt hryðjuverk. Boðað var til fundar um málið í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og lögð fram tillaga um að fordæma árásina. Hún fékkst þó ekki samþykkt þar sem fulltrúi Líbýu í ráðinu og fleiri þjóðir vildu að í tillögunni yrðu árásir Ísraelsmanna á Gaza svæðið einnig fordæmdar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×